mánudagur, 15. október 2007

Maðurinn með grænu fötuna

Sótti prinsessuna í leikskólan í dag eins og lög gera ráð fyrir. Batt hundinn fyrir utan og fór inn - þegar ég opnaði hurðina þá heyrði ég hana gráta - þvílíkt sárt - hún hafði klemmt sig.

Þegar við komum út úr leikskólanum var hundurinn frekar pirraður á biðinni. Ég beygði mig niður og losaði hann þá heyri ég kallað "heyrðu geturðu aðstoðað mig" svo ég lít upp og sé að þar er grár bíll - og rúðan frammí farþegamegin er skrúfuð niður. "ha - já segi ég" eins og góðum borgara sæmir þar sem ég veit að maðurinn sem á þennan bíl er fatlaður.

Svo ég geng að bílnum og hann réttir að mér græna fötu - og segir "geturðu hellt ælunni út fötunni í ruslatunnuna svo að bíllinn angi nú ekki á leiðinni heim"

Og hvað gat ég gert?

Nú ég tók við fötunni - með æluna í hálsinum og hellti ælunni í ruslatunnuna og rétti manninum hana aftur. Mátti ég hafa mig alla við að æla ekki sjálf.

En hann var svo þakklátur.

miðvikudagur, 10. október 2007

Í mígandi rigningu

Þegar ég skellti hurðinni á eftir mér áðan á leið að sækja prinsessuna í leikskólan fattaði ég það að lyklakippan mín lá á kommóðunni í forstofunni. URRRR

Frekar fúlt þar sem bóndinn þurfti að keyra uppeftir til að opna fyrir okkur og keyra svo í bæinn aftur.

En þar sem bóndinn verður ekki heima í kvöld er það okkar verk að fara með Neró í göngutúr í dag - sem við og gerðum. En við vorum ekki búnar að labba langt, þ.e.a.s ég labbaði - prinsessan sat í kerrunni sinni í góðu yfirlæti, þegar það byrjaði að rigna. Klukkutíma síðar komum við heim aftur og ekki var þurr þráður á konu né hundi. Skottið í kerrunni var þurrt.

þriðjudagur, 9. október 2007

Þingvellir á sunnudegi



Sunnudaginn 8. október skruppum við í smá bíltúr á Þingvelli - ekki slæm hugmynd - og trúið mér - það voru MARGIR aðrir sem fengu þessa snilldarhugmynd. Það var nokkur umferð á leiðinni þangað og stappað á bílastæðunum, lá við að fólk þyrfti að berjast um bílastæðin. En við fengum nú stæði og gerðum eins og túristarnir, löbbuðum um. Prinsessan var í essinu sínu og gekk um eins og hún ætti svæðið. Neró vakti ómælda athygli og mætti halda að fólk hefði aldrei séð hund áður.




Eftir langan göngutúr og myndatökur höskuðum við okkur í bílinn. Umferðin á leið frá Þingvöllum var álíka mikil og á Miklubrautinni um 16:30 á virkum degi. Það var bíll við bíl, fegin vorum við að hafa verið fyrr á ferðinni.



Við fórum Grafninginn til baka og stoppuðum í fjörunni við Þingvallavatn, fyrir neðan Skýjaborgir (gamli bústaðurinn sem teindó og fjölskylda áttu) þar var logn og geggjað veður, prinsessa og hundur léku á alls oddi. Lífið var ljúft.