þriðjudagur, 9. október 2007

Þingvellir á sunnudegi



Sunnudaginn 8. október skruppum við í smá bíltúr á Þingvelli - ekki slæm hugmynd - og trúið mér - það voru MARGIR aðrir sem fengu þessa snilldarhugmynd. Það var nokkur umferð á leiðinni þangað og stappað á bílastæðunum, lá við að fólk þyrfti að berjast um bílastæðin. En við fengum nú stæði og gerðum eins og túristarnir, löbbuðum um. Prinsessan var í essinu sínu og gekk um eins og hún ætti svæðið. Neró vakti ómælda athygli og mætti halda að fólk hefði aldrei séð hund áður.




Eftir langan göngutúr og myndatökur höskuðum við okkur í bílinn. Umferðin á leið frá Þingvöllum var álíka mikil og á Miklubrautinni um 16:30 á virkum degi. Það var bíll við bíl, fegin vorum við að hafa verið fyrr á ferðinni.



Við fórum Grafninginn til baka og stoppuðum í fjörunni við Þingvallavatn, fyrir neðan Skýjaborgir (gamli bústaðurinn sem teindó og fjölskylda áttu) þar var logn og geggjað veður, prinsessa og hundur léku á alls oddi. Lífið var ljúft.


1 Ummæli:

Blogger Ellan sagði...

Jeiiii....bara nýr pistill. Flottar myndir ;) Er pabbi þinn ennþá að spá í að kæra suma fyrir ólögmæta myndatöku...og birtingu myndar á netinu? Haha...

9. október 2007 kl. 11:23  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim